Opnað fyrir umsóknir í vetrarfrístund

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskólanna fyrir 1. – 4. bekkinga skólaárið 2024 – 2025. Sótt er um í gegnum www.mittreykjanes.is, þar er hlekkur í umsóknarkerfi sem heitir Vala frístund. Inn í Völu geta foreldrar séð allt sem tengist umsókninni. Nánari upplýsingar um starfið í hverju frístundaheimili er að finna á heimasíðum skólanna.

Völukerfið er hannað sem sjálfsafgreiðslukerfi og eiga foreldrar því að sækja þar um, óska eftir breytingum, skrá frístundaakstur og segja upp frístundardvöl. Foreldrar þurfa að samþykkja boð um vistun sem berst í tölvupósti eftir að umsókn hefur verið afgreidd.

Foreldrar eru hvattir til þess að sækja um fyrir 31. maí svo að hægt sé að tryggja mönnun á frístundaheimilum út frá fjölda nemenda sem sækir um.

Skráning í frístundaakstur hefst eftir að skólastarf hefst í ágúst og munu foreldrar fá frekari upplýsingar þegar sú skráning fer af stað.

ATH! Foreldrar með systkini á leikskólunum; Akri, Gimli, Skógarási og Velli eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkini vegna fjölskylduafsláttar í reitinn Annað. Völukerfið heldur utan um systkini hjá öðrum leikskólum Reykjanesbæjar sem hafa tekið upp Völukerfið.

Frístundaheimili grunnskólanna
Gjaldskrá fyrir árið 2024 – frá ágúst - desember


  • Frístundaskóli (síðdegishressing innifalin): 21.887 kr. á mánuði
  • Síðdegishressing: 180 kr. á dag
  • Tímagjald: 476 kr. hver klukkustund

Fjölskylduafsláttur (gildir eingöngu af tímagjaldi, þ.e. síðdegishressing dregin frá heildargjaldi) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaskóla. Gjöld eru greidd eftir á, gjalddagi er síðasti dagur mánaðar og eindagi 20 dögum síðar